Hestahjal!!!
19.02.2007 11:42:48 / agj2

R.I.P.

kominn með nýjaj síðu:

www.agj.bloggar.is

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 22:09:12 / agj2

Nýjir og betri tímar framundann!!

Sælt veri fólkið afsakið slakkan bloggara sem hefur allt annað við tíma sinn þessa daganna en að blogga. Já kallinn er busy as hell eins og maðurinn sagði. Eftir mikla próftörn þar sem öllum prófum var snýt með annari byrjaði kallinn í nýrri vinnu hjá VSÓ ráðgjöf sem er verkfræðibusness hér í bæjnum. Mjög gaman og maður er alltaf að takast á við ný verkefni á hverjum degi sem er mjög skemmtilegt. Snilldar vinna og snilldar vinnustaður.

Að lokum verð ég að koma á framfæri útihátið ársins ef ekki útihátið aldarinnar, en það er útihátið okkar verkfræðinem. Já kallinn er í því að skipuleggja stærstu útihátið ársins sem núna verður um mánaðarmótin júni -júlí með með fullt af frábæru fólki. Já þvílík gleði og þvílíkt djamm fyrir ykkur sem það finnst gaman. Ef þið viljið kynna ykkur þetta betur endilega kíkið á

Hallgeirsey.tk

Ekkert nema gleði og hamingja ´

Kveðja frá Eggertsgötu 16 íbúð 304

KALLINN HEFUR TALAÐ!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 20:16:25 / agj2

Jóla hvað??

Smá jólalag til að hressa upp á mannskapinn!!

Jólasveininn minn jólasveininn minn ætlar að koma í kvöld

með poka af gjöfum og segja sögur og syngja jólalög

það verður gaman þegar hann kemur þá er svo hátiðlegt hér

jólasveininn minn káti karlinn minn kemur með jólin með sér.


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 10:29:00 / agj2

Allt að gerast!

Nú er allt að verða vitlaust, nóg að gera!!

Kallinn er á fulli í risaverkefni í Rekstrarfræði og vitir menn hvað gersti þá..... ég skal nú segja ykkur það: í gær fengum ég og Gígja þess líka fínu íbúð á studentagörðunum hún er við Eggertsgötu 16. Ekki nóg með það heldur fékk Gígja líka vinnu í Actavis í gær. Hún byrjar eftir áramót. Þvílíkur dagur!!!!! En prófin bíða og enginn tími til að fagna straX!

nóg í bili

hesturinn hefur talað!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 13:56:46 / agj2

Jólin koma brátt!!

Já gott fólk nú styttist í jólin og hvað þýðir það, jú prófin eru að koma. Kallinn er ekki búinn í prófum fyrr en þann 21.des, þvílík stemming. Þannig að maður hefur lítin tíma til að græja jólin :( En maður verður bara að gera gott úr þessu.

Annars hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan ég skrifaði síðast, enda langt síðan að maður skrifaði. Fyrst ber að nefna sigur hennar Gígju minnar í Hljóðnemanum, þar sem hún hreinlega fór á kostum. Gæsahúðinn heltók mann er hún söng!!!! Hún fékk frábær verðlaun( fyrir utan það að fá að taka þátt í söngvarkeppni framhaldskólanna eftir áramót) þ.á.m. 30.000 þús króna inneign hjá iceland express, síma o.fl. :) Og erum við skötuhjúin búin að panta ferð til Spánar næsta sumar, Snilld. Síðan áttu systur mínar afmæli 10 og 11 nóvember( til hamingju stelpur). Skólin er að koma sterkur inn núna og er hreinlega geðveikt mikið að gera, maður hefur varla undan.

Annars er kallinn kominn í jólaskap sem er kannski ekki sniðugt því prófin eru eftir og má maður ekki við því að missa einbeitinguna í prófum útaf jóla tilhlökkun. En maður þraukar, þetta verður líka svo fljót að líða ( alltof fljót). Eins og vanalega er nóg að gera í jólaboðum í komandi desember mánuði og er það fyrsta næsta Sunnudag í Laut 24, já þetta er byrjað..... :)

en nóg í bili, hesturinn hefur talað.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 20:54:40 / agj2

Gleðin tekur enda, bjór er bara bjór, oktoberfest er bara copy frá Germans brainstorm!!!

jæja nú er haustferðin mikla liðin og gekk hún bara mjög vel fyrir sig og held ég að allir séu mjög ánægðir með hvernig hún var. Þvílík gleðí í Loftorku og heimleiðin klikkar sko ekki í Haustferð, þá var sko drukkið og drukkið og dansað og sungið og drukkið og sungið o.s.frv. Þvílík gleði. Síðan þegar að mannskapurinn lendi í Vatnsmýrinni þá var stefnan sett á oktoberfest nema hvað, haldiði að kallinn hafi ekki sagt skilið við hópin og haldið að Eggertsgötu þar sem að Gigja, Gulli (mágur), Sigga(Rósý, svila) og Saga tóku á móti mér, hálf skökkum, með opnum örmum. Þar beið hlandvolg og góð pitsa eftir þreytum feðralangnum. Á Eggertsgötunni horfðum við á Idol, drukkum bjór og kokteil ( Ginari í tonara ala´Rosý) og tjötuðum aðeins áður en að við Gígja ásamt Siggu héldum á Oktoberfest. Þegar þarna er komið við sögu voru allir í góðu stuði en það var við það að fara að breytast. Já Oktoberferst er partý killer, þvílík leiðindi. Það er ekki hægt að vera á þessari hátið án þess að vera drukkin eins og haus laus hæna, og því nennti ég ekki. Þannig að þa var bara haldið heim. btw vakanaði ekki þunnur heldur eitur hress. Síðan héld helgin áfaram á fínu peisi og allir í góðum gír. Við Gigja leigðum spólu, cilluðum og lærðum síðan seinipart á sun. good shit.

p.s. hesturinn hefur talað.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 22:39:33 / agj2

Oktober á næstunni þvílíkt og annað eins!

Jæja gott fólk maður hefur nú ekki verið sá duglegasti í blogbrazzanum undafarið en maður vonar bara að þið fjölmörgu lesendur sýnið þolinmæði á erfiðum tímum verkfræðinemans.

Já það sko sannarlega nóg að gera hjá kallinum og synd og skömm að það séu ekki 40 jafnvel 50 klst í sólarhringnum, en lífið er nú ekki alltaf dans á rósum. Lærdómurinn og grindvíska gyðjan Gigja Eyjólfsdóttir eiga hug minn og tíma minn allan þessa daganna, maður hefur ekki einu sinni tíma til að mæta á félagslegar samkomur (fyllerí). En ég hef nú samt ekkrt nema gott um það að segja að maður sé farinn að láta búsið sitja á hillunni. Þvílíkur munnur að vakna á laugardags- og sunnudagsmorgnum og hafa ekki hausverk og beinverki og síðast en ekki síðst vera ekki slappur langt fram á kvöld og ekki getað framkvæmd nokkurn skapaðan hlut, hvað þá lært stæ eða eitthvað því um líkt.Núna um helgina vaknað kallinn eldhress klukkan níu bæði á laug og sun i grindvísku sveitasælunni og fór að læra. Snildar helgi þar á ferð, bláa lónið, Friday´s, légleg bíómynd, snjókoma, snjóboltar skúffukaka og pizza ala´sigrún, snilld.

Núna er að koma october og já tímin líður hratt, mér finnst eins og ég hafi verið að skrifa pistilinn um Guðna vin min Ágústson í gær er vitir menn það eru margir mánuðir sína, finnst eins og ég hafi dottið í það í gær en vitir menn það eru 3 vikur síðan, finnst eins og Carlos og Rosý hafi troðið upp á Spáni fyrir tveim dögum en það var í júní. Svona líður tímin hratt og hlutirnir gerast hratt áður en maður veit af eru jólin komin og allir í góðu skapi.

P.S HESTURINN carlos HEFUR TALAÐ!!!!


» 108 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 18:32:33 / agj2

Stutt og laggott um jólaskapið!!

Gaman að segja frá því að fólk er farið að föndra fyrir jólinn, ég er ekki frá því að maður sé kominn í jólaskap. Já fólk nærri mér er að föndra og kann ég þeim miklar þakkir fyrir því að kallinn er komin í smá jólaskap. já gott fólk ég hef meira að segja heyrt nokkrar línur úr jólalagi og það í sept. En fyrir ykkur sem að ekki eru komin í jólaskap segji ég bara ÓHEPPIN.

JÓLAHESTURINN HEFUR TALAÐ!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 23:40:17 / agj2

Nokkrar línur yfir Lost!!!

Datt í hug að skrifa hér nokkrar línur yfir þættinum Lost á stöð eitt.

Annars er ekkert nýtt sem að á daga mína hefur drifið síðan ég bloggaði síðast, fór í vinnupartý á föstudaginn þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um að mitt næsta djamm væri í vikna fjarlægt, en vitir menn kallin á djammið og þynnkan var ekkert svo rosalega í þetta skipti var eins og nýri eftir nokkra tíma.  Chilaði svo í Grindó i lau og sun.

Ekki nóg með það að kallinn hafi staulast á djammið um helgina þá gæti maður verið á leiðini á hið Alræmda Fótbolta ball grindavikur, en NEI. Þetta ball er þrátt fyrir fjarveru mína í þetta skipt er það besta í brazzanum ásamt sjómannaböllunum þar á bæ og stöku "Sálarshowi" í stapanum. Mæli tvímælalaust með þvi að fólk skelli sér á djammið í grindó um helgina!!!

HESTURINN HEFUR TALAÐ, HEYRUMST Á TÖLTINU!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 20:18:21 / agj2

Þynnka ræktarinnar verri en þynnka ölvímunar!!!

Jæja nú er skólinn byrjaður hjá kallinum og allt komið á fullt, ég ætla nú samt að reyna að koma með nokkrar línur reglulega í vetur og gleðja ykkar litla hjarta. Eitt af því sem að fylgir haustinu hjá okkur Suðurnesjamönnum er að með haustinu kemur ljósanótt, lengsta nótt ársins heilir 4 dagar. Þessi ljósanótt var hin ágætasta skemmtun, skítsæmileg flugeldasýning, fullt af ágætis shiti sem að maður gat gert á laugardeginum og mikið af party feeling í öllum mannskapnum. Nóttinn sjálf var ágæt allir pissfullir niðri í bæ og þar var ég því miður enginn eftir bátur. Já ágæti lesandi ölvíman tók öll völd á ljósanótt og var ég upp á mitt leiðinlegasta það kvöldið, og á hún Gígja mín heiður skilið fyriri að þola mig þetta kvöld. Dagurinn eftir var þess vegna alveg hriklegur og skilaðir kallinn heilum Olsen bát um miðjan dag og með dúndrandi hausverk allan daginn og varð mánudagurinn líka fyrir barðinu á ölvímu laugardagsins. En ég er nú búinn að jafna mig núna sem betur fer og námið komið á sæmlegt ról efir þynnkur helgarinnar.

HESTURINN HEFUR TALAÐ. HEYRUMST SKJÓT!!!

P.S. BP er ekki fyrir alla sérstaklega ef þú hefur ekki hreyft þig í 1 til 2 ár, þvílíkar vöðvabólgur, get ekki hreyft mig!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2005 01:16:00 / agj2

Kallinn er kominn á kreik....aftur!!! Pistill 11.

Jæja gott fólk þá er hesturinn mætur á bloggið aftur eftir smá dvala, það er nefnilega búið að vera brjálað að gera hjá kallinum undanfarinn misseri og ekki er minna að gera núna þegar að próftörninn er genginn í garð!!!

En nú er sumarið að ganga í garð og  það er óhætt að segja að kallinn er kominn í sumarskap!!! Og þvílík blíða sem að er búin að vera undafarna daga, mér sem finnst best að læra í rigninu og brjáluðu veðri, nei nei þá er bara sól og sumar í gangi og allir úti að labba og chilla á kantinum á meðan að ég er að þræla mér út í lærdómi. En það eru ekki nema rum vika eftir af prófunum og stutt í prófloka djamm og sumar djamm.

En hvað finnst ykkur ágætu lesendur um Strendur Spánar, mig hefur alltaf líkað vel við Spán, þetta er svakalegur staður, alltaf hægt að droppa í supermarkaðinn og grípa sér kaldan á 50 kall, kíkja á ströndina í sólbað, fá sér 400 gr steik á 500 kall, fá sér síðan meiri bjór, tekur töltið um bæinn og fær sem annan kaldan brokka síðan meðfram ströndinni með einn kaldan í annari koma síðan heim fá sér einn fyrir svefninn. ´já það er ekki hægt að segja annað en að ég fíli Spán nokkuð mikið, og já gott fólk þanngað er stefnan sett þann 1. júni og þar á að dvelja í 14 daga. Þvíli snilld, Þó að þetta verði líklega ekki i anda úrskriftarferðarninnar miklu hér um árið þar sem að hópurinn var fullur mikið til alla ferðinna. Þarna verður sko chillað á kantinum og fetað um ströndina í rólegheitum, en ekki lappað í slöngulínu eftir strandgötunni eins og Tommi gerði um árið, eða verið þétt í beðinu gaulað eitthvað upp i loftið.

Já þvílík spenna fyrir þessa ferð, og síðan þegar að ég lendi þá er haldið í sleppitúrinn mikla en ég segji ykkur meira um það síðar. það er sko efniviður í nokkar pistla skal ég ykkur segja, þvilík að ferðir hafa sjaldan verið farnar um hið mikla Ísland!!!!

P.S. Hesturinn hefur talað!!!


» 125 hafa sagt sína skoðun

25.01.2005 17:53:31 / agj2

pistill 10.

jæja þá er kallinn kominn á kreik aftur eftir smá frí, jólin lögðust vel í kappann og fóru prófin vel fyrir kallin náði öllu sem að hann fór í en fór ekki í eitt próf þannig að maður er að taka upp einn áfanga nú eftir áramót. Skólinn hófst aftur þann 10.jan og lítur þessi önn miklu betur út heldur en sú fyrsta, þó að vinnan minnki ekkert heldur þver öfugt, sem sagt brjálað að gera hjá kallinum. Ekki má gleyma að nefna það að kallinn er komin með hestinn sinn í hús hér í hafnarfirði sem er mjög gaman, það er alltaf gott að fara aðeins "út eftir" eftir mikla lærdóms törn og taka vel á  þvi í hestúsinu. Hvað er betra en reiðtúr í góðu verðri i hafnarfirðinum segi ég bar... öss. Maður hefur haft sig rólegan í drykkjuni það sem af er ári og er  ekkert nema gott um það að segja,(enda var varla annað hægt), held nú samt að maður takai nokkra fyllerístúra í hestunum í vetur og eru páskarini þar gott target!!! en nóg í bili það styttist í landsleik og því segi ég bara ÁFRAM ÍSLAND!!

P.S. HESTURINN HEFUR TALAÐ!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2005 01:34:02 / agj2

pistill.9

Jæja nú er komið nýtt ár og óska ég ykkur gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir það gamla, en nóg af smjaðri!!!!

nú er kallinn ekki sáttur með ykkur lesendur góðir, ekki eitt einasta comment í þessa blessuðu gestabók, comon gott fólk setjið nú inn nokkra punkta svo að ég sjái að það sé einhver að lesa þessa blessuðu síðu. ég er ekki að þessu fyrir sjálfan mig ef þið haldið það heldur er ég að gefa ykkur tækifæri til að lesa eitthvað skemmtilegt annað slagið ykkur til fróðleiks og upplyftingar. Maður myndi líka skrifa oftar ef að þið sýnduð þessu smá áhuga og kæmuð með ykkar skoðun á hlutunum. ekki meira af röfli i bili!!!!

HESTURINN HEFUR TALAÐ OG EKKI Í GÓÐU SKAPI!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2004 23:49:30 / agj2

pistil 8.

Ég lýsi því hér með yfir að Guðni okkar Ágústsson, landbúnaðarráðherran, er lang lang skemmtilegasti ráðherra íslandssögunar. Hann Guðni skellti sér nefnilega í kringluna og fékk sér pylsu með öllu. Hann lýsti þar fyrir okkur íslendingum að það besta sem að hann gerði í den tid þegar að hann pickaði upp "fallega" stúlku  var að fara með hana á bæjarins bestu og kaupa eina með öllu og sinalco. Þvílíkur snillingur djöfull hefur hann leyst svakalega margar diffurjöfnur á sínum tíma, hver pylsan á fætur annari hefur farið ofan í kokið á mörgum Reykjarvíkurpíunum á þeim tíma. Ekki nóg með það að lýsa yfir sínum persónulegu högum í den tid þá mældi hann með því að allir krakkar á íslandi dældu í sig hverri pylsunni af annari því að pylsur væru besti og hollasti skyndibita matur okkar, síðan seti hann rúsínuna a pysluendan er hann sagði að krakkarnir yrðu stórir og sterkir á þessum hollu pylsum. Greinilegt að þessi annars skemmtilegi ráðherra sér offitu vandan sem að við líkt og usa-menn glímum við á dögum tölvuvæðingarinnar.

En við, hinu ungu sveinar þessa lands, verðum honum Guðna alltaf þakklátir fyrir þessa pylsu ráðleggingu, því að nú eigum við eftir að streyma á Bæjarins Bestu og fá okkur eina með öllu og eina sinalco. en samkvæmt honum Guðna á þetta pyslu boð eftir að borga sig fyrir okkur því að sú stelpa sem að þiggur ekki pylsu á skilið að verða send til Uberkistan(en þar er neysla pylsna dauðasynd). Eina spurninginn er hvort að við getum verið jafn kynþokkafullir og ráðherran góði á náð okkur í í dömu en spakir menn segja mér að hann Guðni hafi verið sannkallað kvennagull á sínum tíma og verið þekktur fyrir að flengja þær hverjar á fætur annri í kompu sem að hann átti á selfossi.

Já gott fólk hann Guðni okkar er frá henni selfossi og var hann brautryðjandi i notkun hárlitar og var um það skrifað á sínum tíma er hann mæti á djammið á Gauknum með 4 dömur upp á arminn og með hvítar strípur í hárinum. Allt ætlaði þá um koll að kéyra á selfossi því að þetta vær í raun innanbæjar leyndarmál sem að enginn mátti segja frá. Nokkrir skæðir Selfyssingar ætluðu að lemja hann Guðni í buff en þá komu ungir sveinar að nafni Hljomar frá keflavík( með Engilbert í fararbroddi) og björguðu kauða(en þetta er eimitt upphaf rígsins sem að er á milli kef og selfoss). upp úr þessu stofnaði Guðni hárgreiðslustofu og varð gríðarlega vinsæll. Þetta hárgreiðslu fipp hans Guðna endaði svo snögglega þegar að Framsóknarflokkurinn fattaði að þeim vantaði einhvern skemmtilegn í flokkinn sinn og fékk hann þá Guðna til liðs við sig því að hann var þekktur fyrir að vera skemmtilegarsti tappinn í towninu. Þarna lagði kallin skærin og pysluna á hilluna fann sér leiðinlega konu(því að hann þoldi ekki þegar einhver er skemmtilegari en hann) skaut upp nokkrum krökkum og er nú kominn á Alþingi. Síðast afrek hans er heimsmetið í lengd á pyslu með öllu nema hráum, en hann kýs ekki hráan lauk nú til dags því að það fer illa í magasýrurnar hans og fær hann þá mikla andrembu, ef ég mann rétt þa var pylsan 11,90 m að lengd( geri aðrir betur). en núna lýk ég umfjöllum minni um Guðna "funny boy" Ágústson. Það er aldrei að vita nema að ég tali fljólega um frænda hans Halldór Ásgrímsson en hann varð brjálaður þegar að hann fékk ekki að fara með Guðni að borða pyslu í Kringlunni

HESTURINN HEFUR TALAÐ!!!


» 92 hafa sagt sína skoðun

23.11.2004 17:27:21 / agj2

Aukajólapistill nr 7.

Haldiði að kallinn hafi bara ekki gleymt að óska henni Hörpu Guðmundsdóttur nágarana mínum til margara ára góðs gengis í komandi jólahúsakeppni, já hún Harpa kemur nú tvíefld til leiks þar sem að henni (og reyndar mér einnig ) þótti illa að sér vegið í jólahúsakeppnini, En fyrir þá sem að ekki vita þá snýst sú keppni um það hver skreytir húsið sitt flottast fyrir hver jól. En þar er hún Harpa á Borgarvegi 20 í sérflokki og ættli hún að vera búinn að vinna þetta allavega einu sinni undanfarinn ár. já hun hefur hreinlega verið einu leveli fyrir ofan aðrar í þessari keppni um árinn og er ekki annað að sjá en að dómnefndinn i þessari keppni sé ekki með öllu mjalla og ætti að fara að endurskoða sitt hlutskipiti í þessari keppni. Já þessir keppendur sem að hafa unnið undan farinn ár komst að mínum mati ekki með tærnar þar sem að hún Harpa hefur hælana, gamal seig er kominn út í garð í lok nóvember og áður en maður veit af þá er sól allan sólahringinn á borgarveginum og það er ekki bara vegna þessa að hún er með allt yfirfullt af jólaseríum í garðinum sínum, nei........ fólkið kemur í röðum inn á borgarveginn og með háuljósinn í botni og kallinn sefur ekki dúr. ég er ekki frá því að ég taki lit um jólin slík er ljósdýrðin.

Það er að mínu mati kominn tími til að Harpa hreppi hnossið og væri önnur úrslit en þau hneysa og fyrir land og þjóð og er ég ekki í vafa um að DV myndi skrifa góða greinu um klíkuskap keflvíkinga í jólahúsakeppninni ef að hún Harpa vinnur ekki.          GO HARPA,GO HARPA GO.

HESTURINN HEFUR TALAÐ!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2